{"id":219634,"date":"2021-04-28T09:34:39","date_gmt":"2021-04-28T09:34:39","guid":{"rendered":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/?p=219634"},"modified":"2021-04-28T09:34:39","modified_gmt":"2021-04-28T09:34:39","slug":"ishellaaevintyri","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/ishellaaevintyri\/","title":{"rendered":"\u00cdshella\u00e6vint\u00fdri"},"content":{"rendered":"<img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-219147 size-large\" src=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-1-1024x348.png\" alt=\"\" width=\"680\" height=\"231\" srcset=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-1-1024x348.png 1024w, https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-1-300x102.png 300w, https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-1-768x261.png 768w, https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-1-737x251.png 737w, https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-1-645x219.png 645w, https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-1.png 1262w\" sizes=\"auto, (max-width: 680px) 100vw, 680px\" \/>\n<h4><strong>Eldur og \u00eds<\/strong><\/h4>\n<p>\u00dea\u00f0 er magna\u00f0 a\u00f0 upplifa st\u00f3ru n\u00e1tt\u00faru\u00f6flin sem m\u00f3ta \u00cdsland, s\u00e9rstaklega \u00feegar \u00feau koma saman og mynda einstakt landslag, eins og sj\u00e1 m\u00e1 \u00ed Vatnaj\u00f6kuls\u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0i sem er a\u00f0 finna \u00e1 Su\u00f0austurlandi um 380 km fr\u00e1 Reykjav\u00edk.<\/p>\n<p>\u00c6vit\u00fdri\u00f0 byrjar strax \u00e1 lei\u00f0inni fr\u00e1 Reykjav\u00edk en \u00e1 henni er a\u00f0 finna fj\u00f6ldan allan af \u00e1hugaver\u00f0um st\u00f6\u00f0um. \u00dea\u00f0 freistar \u00ed \u00f6llu falli a\u00f0 stoppa og taka myndir af \u00f6llu \u00f3tr\u00falega landslaginu sem fyrir ber og svo au\u00f0vita\u00f0 \u00edslenska hestinum.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e9g \u00fatskrifa\u00f0ist sem l\u00edffr\u00e6\u00f0ingur flutti \u00e9g til \u00cdslands til a\u00f0 l\u00e1ta \u00e6skudraum minn um a\u00f0 vinna \u00ed n\u00e1nd vi\u00f0 n\u00e1tt\u00faruna og rannsaka hana ver\u00f0a a\u00f0 veruleika. Eftir nokkur \u00e1r \u00e1 \u00cdslandi f\u00e9kk \u00e9g loksins t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 keyra a\u00f0 J\u00f6kuls\u00e1rl\u00f3ni og heims\u00e6kja s\u00ed\u00f0an \u00edshellana \u00ed Vatnaj\u00f6kli. Heims\u00f3knat\u00edmabili\u00f0 er stutt og alltaf \u00e1 veturna, \u00fev\u00ed \u00feaki\u00f0 \u00e1 hellunum getur brotna\u00f0 og falli\u00f0 saman hven\u00e6r sem er ef hitastigi\u00f0 fer yfir frostmark. \u00c1standi\u00f0 ver\u00f0ur svo enn h\u00e6ttulegra og \u00f3st\u00f6\u00f0ugra \u00e1 me\u00f0an og eftir a\u00f0 rignir \u00e1 \u00feessu sv\u00e6\u00f0i.<\/p>\n<img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-219149 size-full\" src=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-2.png\" alt=\"\" width=\"520\" height=\"372\" srcset=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-2.png 520w, https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-2-300x215.png 300w\" sizes=\"auto, (max-width: 520px) 100vw, 520px\" \/>\n<p>Ma\u00f0ur \u00fearf alltaf a\u00f0 hafa \u00ed huga hversu \u00f3\u00fatreiknanlegt ve\u00f0ri\u00f0 er ef ma\u00f0ur hyggur \u00e1 \u00fativeru \u00e1 \u00cdslandi. Vindurinn getur veri\u00f0 alveg brj\u00e1l\u00e6\u00f0islega sterkur og \u00feegar illa vi\u00f0rar er umfer\u00f0 um marga vegi st\u00f6\u00f0vu\u00f0, svo \u00fea\u00f0 er mikilv\u00e6gt a\u00f0 sko\u00f0a ve\u00f0ursp\u00e1na \u00e1\u00f0ur en ma\u00f0ur heims\u00e6kir j\u00f6kulinn.<\/p>\n<p>Fyrsta reynslan m\u00edn af \u00edshellunum var \u00f3tr\u00faleg. \u00c1 fer\u00f0 minni um \u00fe\u00e1 \u00ed h\u00f3pi annarra fer\u00f0amanna t\u00f3k \u00e9g \u00f3teljandi myndir og myndb\u00f6nd. \u00c9g tr\u00fa\u00f0i varla \u00fev\u00ed sem \u00e9g s\u00e1! \u00dea\u00f0 var svo erfitt me\u00f0taka \u00fea\u00f0 a\u00f0 bl\u00e1i \u00edsinn v\u00e6ri raunverulegur og a\u00f0 myndirnar \u00e1 Instagram v\u00e6ru algj\u00f6rlega \u00f3unnar. \u00deessi eini lei\u00f0angur reyndist alls ekki n\u00f3g fyrir mig, svo \u00e9g \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 senda skipuleggjendum fer\u00f0arinnar ferilskr\u00e1na m\u00edna og s\u00e6kja um starf.<\/p>\n<img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-219154 size-full\" src=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-3.png\" alt=\"\" width=\"560\" height=\"375\" srcset=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-3.png 560w, https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-3-300x201.png 300w\" sizes=\"auto, (max-width: 560px) 100vw, 560px\" \/>\n<p>N\u00e6sta vetur vann \u00e9g og bj\u00f3 vi\u00f0 st\u00e6rsta j\u00f6kul \u00ed Evr\u00f3pu! Vins\u00e6lustu hellarnir eru sta\u00f0settir \u00ed Brei\u00f0amerkurj\u00f6kli sem kemur \u00fat \u00far Vatnaj\u00f6kli. Brei\u00f0amerkurj\u00f6kull \u00feekur 900 ferk\u00edl\u00f3metra og \u00feykkasti hluti hans er 600 metrar, svo efst \u00e1 honum m\u00e1 finna brunna e\u00f0a sprungur sem liggja fr\u00e1 yfirbor\u00f0inu allt a\u00f0 600 metra ni\u00f0ur.<\/p>\n<h4>Eldurinn!<\/h4>\n<p>\u00deetta d\u00fdnam\u00edska jafnv\u00e6gi milli \u00edss og eldvirkni er hvergi a\u00f0 finna annars sta\u00f0ar \u00ed heiminum. Undir Vatnaj\u00f6kli liggja sj\u00f6 eldst\u00f6\u00f0vakerfi en eitt \u00feeirra f\u00f3\u00f0rar Gr\u00edmsv\u00f6tn sem eru eitt virkasta eldfjall landsins. Auk \u00feess eru eldst\u00f6\u00f0vakerfin <a href=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/natturulerla\/oraefajokull\/\">\u00d6r\u00e6faj\u00f6kull<\/a>, B\u00e1r\u00f0arbunga, Kverkfj\u00f6ll, \u00de\u00f3r\u00f0arhyrna, Hamarinn og Esjufj\u00f6ll. Um 60% j\u00f6kulsins liggur ofan \u00e1 virkum eldfj\u00f6llum sem gefur einstakt t\u00e6kif\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 rannsaka samspil j\u00f6kla og eldfjalla \u00fear sem j\u00f6kullinn sverfur \u00ed burtu n\u00fdja bergi\u00f0 sem myndast \u00feegar n\u00fdja hrauni\u00f0 k\u00f3lnar.<\/p>\n<p>\u00deetta er \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 j\u00f6klar geta veri\u00f0 g\u00edfurlega h\u00e6ttulegir. Aldrei reyna a\u00f0 ganga \u00e1 j\u00f6kul e\u00f0a heims\u00e6kja \u00edshella upp \u00e1 eigin sp\u00fdtur. J\u00f6klarnir eru \u00feaktir sprungum sem f\u00f3lk sem hefur ekki hloti\u00f0 vi\u00f0eigandi \u00fej\u00e1lfun tekur hreinlega ekki eftir. \u00d3l\u00edkir hlutar Brei\u00f0amerkurj\u00f6kuls skr\u00ed\u00f0a \u00e1 mismunandi hra\u00f0a, \u00fe\u00f3 svo a\u00f0 d\u00e6miger\u00f0ur hra\u00f0i \u00e1 skri\u00f0j\u00f6kli s\u00e9 milli 30 og 200 metra \u00e1 \u00e1ri. \u00deetta gerir a\u00f0 verkum a\u00f0 landslagi\u00f0 breytist st\u00f6\u00f0ugt \u00feannig a\u00f0 fer\u00f0ir upp \u00e1 j\u00f6kulinn og leit a\u00f0 \u00edshellum kallar \u00e1 endalausar \u00e1skoranir.<\/p>\n<img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-219156 size-full\" src=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-4.png\" alt=\"\" width=\"508\" height=\"379\" srcset=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-4.png 508w, https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-4-300x224.png 300w\" sizes=\"auto, (max-width: 508px) 100vw, 508px\" \/>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>\u00cdsinn!<\/strong><\/p>\n<p>\u00c1r hvert, \u00e1\u00f0ur en sko\u00f0unarfer\u00f0irnar um hellana hefjast, \u00feurfa lei\u00f0s\u00f6gumenn og b\u00edlstj\u00f3rar a\u00f0 byrja \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 leita a\u00f0 n\u00fdjum hellum \u00ed j\u00f6klinum. \u00deessi leit getur teki\u00f0 margar vikur, \u00fear sem Vatnaj\u00f6kull er st\u00e6rsti j\u00f6kull Evr\u00f3pu og \u00feekur \u00ed dag 8% af \u00cdslandi e\u00f0a 7.700 ferk\u00edl\u00f3metra og h\u00fan er eitt af \u00fev\u00ed sem gerir starf lei\u00f0s\u00f6gumannsins hva\u00f0 mest spennandi. S\u00e1 e\u00f0a s\u00fa sem finnur n\u00fdjan, t\u00f6frandi \u00edshelli fyrst f\u00e6r l\u00edka a\u00f0 gefa honum nafn, sem er mikill hei\u00f0ur.<\/p>\n<p>\u00deegar hellarnir eru or\u00f0nir \u00f6ruggir hefst vert\u00ed\u00f0in fyrir alv\u00f6ru og gestir fara a\u00f0 streyma \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0inn. Fer\u00f0in a\u00f0 j\u00f6klinum er m\u00f6gnu\u00f0. Ma\u00f0ur situr \u00ed einum af st\u00e6rstu jeppum landsins, s\u00e9r allan skalann af d\u00fdrum (hreind\u00fdrum, refum, rj\u00fapu o.s.frv.) og landslag sem f\u00e6r mann til a\u00f0 efast um a\u00f0 ma\u00f0urinn hafi nokkru sinni stigi\u00f0 ni\u00f0ur f\u00e6ti \u00e1 tunglinu, enda er \u00feetta sv\u00e6\u00f0i \u00fear sem kvikmyndir \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 \u201eInterstellar\u201c eru teknar upp. Ma\u00f0ur fer algj\u00f6rlega \u00ed annan heim.<\/p>\n<p>Jepparnir fara me\u00f0 mann eins langt og h\u00e6gt er en stundum \u00fearf a\u00f0 ganga nokkra k\u00edl\u00f3metra, svo \u00fea\u00f0 er mikilv\u00e6gt a\u00f0 vera vel b\u00fainn \u00ed g\u00f3\u00f0um sk\u00f3m og \u00fativistarf\u00f6tum og tilb\u00fainn fyrir einstaka upplifun. \u00c1\u00f0ur fyrr entust hellarnir \u00ed m\u00f6rg \u00e1r \u00e1\u00f0ur en \u00feeir f\u00e9llu saman og hurfu a\u00f0 eil\u00edfu, en me\u00f0 hl\u00fdrra loftslagi og lengri regnt\u00edmabilum geta \u00feeir n\u00fa br\u00e1\u00f0na\u00f0 \u00e1 a\u00f0eins fimm m\u00e1nu\u00f0um. \u00dea\u00f0 sem \u00fe\u00fa s\u00e9r\u00f0 \u00feegar \u00fe\u00fa heims\u00e6kir \u00edshelli \u00ed R\u00edki Vatnaj\u00f6kuls mun \u00feannig aldrei haldast \u00ed sama horfi.<\/p>\n<img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-219158 size-large\" src=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-5-1024x358.png\" alt=\"\" width=\"680\" height=\"238\" srcset=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-5-1024x358.png 1024w, https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-5-300x105.png 300w, https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-5-768x268.png 768w, https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-5-737x258.png 737w, https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-5-645x225.png 645w, https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-5.png 1239w\" sizes=\"auto, (max-width: 680px) 100vw, 680px\" \/>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Bl\u00e1i liturinn!<\/strong><\/p>\n<p>Hellarnir eru fr\u00e6gir fyrir \u00feennan rafmagna\u00f0a bl\u00e1a lit sem margir \u00feeirra skarta, en \u00fe\u00f3 ekki allir!<\/p>\n<p>\u00cdsinn \u00ed hellunum er fullkomlega \u00f3l\u00edkur \u00feeim sem vi\u00f0 eigum a\u00f0 venjast. J\u00f6kullinn er nefnilega mynda\u00f0ur \u00far \u00eds sem er fullkomlega laus vi\u00f0 hv\u00edtar loftb\u00f3lur og ekki ger\u00f0ur \u00far vatni sem fr\u00fds vi\u00f0 kulda. Hann ver\u00f0ur til \u00far snj\u00f3 undir \u00fer\u00fdstingi sem gerir a\u00f0 verkum a\u00f0 hann er \u00feykkur, \u00fe\u00e9ttur og gamall og dregur \u00ed sig allt litr\u00f3fi\u00f0 nema bl\u00e1an! \u00deess vegna er bl\u00e1i liturinn svo \u00e1berandi \u00ed sumum hellum. Svo eru hellar sem eru hv\u00edtir, bl\u00e1gr\u00e6nir, gr\u00e6nir og jafnvel svartir, r\u00e9tt eins og vatn sem tekur \u00e1 sig \u00f3l\u00edka liti eftir birtuskilyr\u00f0um og d\u00fdpi. J\u00f6kul\u00edsinn er \u00ed raun eins og risast\u00f3rt frosi\u00f0 haf.<\/p>\n<img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-219160 size-full\" src=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-6.png\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"400\" srcset=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-6.png 600w, https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-6-300x200.png 300w\" sizes=\"auto, (max-width: 600px) 100vw, 600px\" \/>\n<p>J\u00f6klar myndast og st\u00e6kka \u00e1 svok\u00f6llu\u00f0u \u00e1komusv\u00e6\u00f0i sem liggur gjarnan mun h\u00e6rra uppi \u00e1 j\u00f6klinum en skri\u00f0j\u00f6klarnir sem koma undan honum. \u00c1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed er a\u00f0 snj\u00f3rinn sem fellur \u00e1 um vetur br\u00e1\u00f0nar ekki allur yfir sumari\u00f0, sem \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 n\u00e6sta vetur fellur n\u00fdr snj\u00f3r sem \u00fdtir ni\u00f0ur og \u00fe\u00e9ttir snj\u00f3inn sem er til sta\u00f0ar fyrir \u00feannig a\u00f0 hann breytist \u00e1 endanum \u00ed j\u00f6kul\u00eds.<\/p>\n<img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-219145 size-full\" src=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-7.png\" alt=\"\" width=\"412\" height=\"616\" srcset=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-7.png 412w, https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-7-201x300.png 201w, https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-7-322x482.png 322w\" sizes=\"auto, (max-width: 412px) 100vw, 412px\" \/>\n<p>Flestir gestir eru me\u00f0vita\u00f0ir um a\u00f0 einn daginn munu t\u00f6fraheimur \u00edshellanna hverfa alveg og vi\u00f0 g\u00e6tum veri\u00f0 me\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu kynsl\u00f3\u00f0um \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni til a\u00f0 sj\u00e1 og nj\u00f3ta \u00feessarar einst\u00f6ku n\u00e1tt\u00farufegur\u00f0ar. Br\u00e1\u00f0nun Vatnaj\u00f6kuls \u00ed heild mun h\u00e6kka sj\u00e1varm\u00e1l \u00e1 heimsv\u00edsu um 1 cm sem sp\u00e1\u00f0 er a\u00f0 muni gerast \u00e1 n\u00e6stu 200 \u00e1rum. \u00c1ri\u00f0 2019 var jar\u00f0arf\u00f6r Okj\u00f6kuls haldin \u00e1 \u00cdslandi, en hann var fyrsti j\u00f6kullinn \u00e1 landinu til a\u00f0 hverfa alveg. Vi\u00f0 vonum a\u00f0 Vatnaj\u00f6kull geti enst \u00ed margar aldir og \u00feannig gefi\u00f0 \u00fe\u00fasundum gesta innbl\u00e1stur til a\u00f0 huga a\u00f0 n\u00e1tt\u00farunni \u00e1\u00f0ur en \u00fea\u00f0 er of seint og hugsa \u00fat \u00ed \u00fea\u00f0 hvers vegna vi\u00f0 ger\u00f0um ekki n\u00f3g. \u00deegar ma\u00f0ur nemur sta\u00f0ar \u00e1 \u00ed einum af \u00feessum st\u00f3rfenglegu \u00edshellum finnur ma\u00f0ur sannarlega til sm\u00e6\u00f0ar sinnar og hugsa s\u00e9r a\u00f0 hellarnir sem vi\u00f0 erum a\u00f0 sko\u00f0a eru a\u00f0eins r\u00e9tt undir yfirbor\u00f0i j\u00f6kulsins.Getur\u00f0u \u00edmynda\u00f0 \u00fe\u00e9r hva\u00f0 g\u00e6ti leynst ef ma\u00f0ur f\u00e6ri d\u00fdpra? Getur\u00f0u \u00edmynda\u00f0 \u00fe\u00e9r hverju vi\u00f0 h\u00f6fum a\u00f0 tapa?<\/p>\n<p>Myndir og texti:<\/p>\n<p>Daniel Gonz\u00e1lez<br \/>\n<a href=\"https:\/\/www.instagram.com\/dani_gonzape\/\">IG @dani_gonzape<\/a><br \/>\nMe\u00f0limur \u00ed Ocean Missions NGO<\/p>\n<img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-219171 size-full\" src=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Screenshot-2020-12-11-at-15.05.36.png\" alt=\"\" width=\"722\" height=\"240\" srcset=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Screenshot-2020-12-11-at-15.05.36.png 722w, https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Screenshot-2020-12-11-at-15.05.36-300x100.png 300w, https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Screenshot-2020-12-11-at-15.05.36-645x214.png 645w\" sizes=\"auto, (max-width: 722px) 100vw, 722px\" \/>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<h6>\u00cdslensk \u00fe\u00fd\u00f0ing: \u00d3l\u00f6f Arnalds<\/h6>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Eldur og \u00eds \u00dea\u00f0 er magna\u00f0 a\u00f0 upplifa st\u00f3ru n\u00e1tt\u00faru\u00f6flin sem m\u00f3ta \u00cdsland, s\u00e9rstaklega \u00feegar \u00feau koma saman og mynda einstakt landslag, eins og sj\u00e1 m\u00e1 \u00ed Vatnaj\u00f6kuls\u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0i sem er a\u00f0 finna \u00e1 Su\u00f0austurlandi um 380 km fr\u00e1 Reykjav\u00edk. \u00c6vit\u00fdri\u00f0 byrjar strax \u00e1 lei\u00f0inni fr\u00e1 Reykjav\u00edk en \u00e1 henni er a\u00f0 finna fj\u00f6ldan allan af&#8230;<\/p>\n","protected":false},"author":11,"featured_media":219160,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[294,295,211,181,182,183],"tags":[],"class_list":["post-219634","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-myndatokur","category-joklar","category-leidsogn","category-nattura","category-skodunarferdir","category-hugmyndir"],"acf":[],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.5 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>\u00cdshella\u00e6vint\u00fdri - Visit Vatnaj\u00f6kull<\/title>\n<meta name=\"description\" content=\"\u00dea\u00f0 er magna\u00f0 a\u00f0 upplifa st\u00f3ru n\u00e1tt\u00faru\u00f6flin sem m\u00f3ta \u00cdsland, s\u00e9rstaklega \u00feegar \u00feau koma saman og mynda einstakt landslag, eins og sj\u00e1 m\u00e1 \u00ed Vatnaj\u00f6kuls\u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0i sem er a\u00f0 finna \u00e1 Su\u00f0austurlandi um 380 km fr\u00e1 Reykjav\u00edk.\" \/>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/ishellaaevintyri\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"\u00cdshella\u00e6vint\u00fdri - Visit Vatnaj\u00f6kull\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"\u00dea\u00f0 er magna\u00f0 a\u00f0 upplifa st\u00f3ru n\u00e1tt\u00faru\u00f6flin sem m\u00f3ta \u00cdsland, s\u00e9rstaklega \u00feegar \u00feau koma saman og mynda einstakt landslag, eins og sj\u00e1 m\u00e1 \u00ed Vatnaj\u00f6kuls\u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0i sem er a\u00f0 finna \u00e1 Su\u00f0austurlandi um 380 km fr\u00e1 Reykjav\u00edk.\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/ishellaaevintyri\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Visit Vatnaj\u00f6kull\" \/>\n<meta property=\"article:publisher\" content=\"https:\/\/www.facebook.com\/visitvatnajokull.is\/\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2021-04-28T09:34:39+00:00\" \/>\n<meta property=\"og:image\" content=\"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-6.png\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:width\" content=\"600\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:height\" content=\"400\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:type\" content=\"image\/png\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"\u00deorkell \u00d3skar Vignisson\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:creator\" content=\"@vatnajokull_reg\" \/>\n<meta name=\"twitter:site\" content=\"@vatnajokull_reg\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"\u00deorkell \u00d3skar Vignisson\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"7 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/is\\\/ishellaaevintyri\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/is\\\/ishellaaevintyri\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"\u00deorkell \u00d3skar Vignisson\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/4cf2906282159374e32b63bc042015c8\"},\"headline\":\"\u00cdshella\u00e6vint\u00fdri\",\"datePublished\":\"2021-04-28T09:34:39+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/is\\\/ishellaaevintyri\\\/\"},\"wordCount\":1328,\"commentCount\":0,\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/is\\\/ishellaaevintyri\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2020\\\/12\\\/Picture-6.png\",\"articleSection\":[\"Myndat\u00f6kur\",\"J\u00f6klar\",\"Lei\u00f0s\u00f6gn\",\"N\u00e1tt\u00fara\",\"Sko\u00f0unarfer\u00f0ir\",\"Hugmyndir\"],\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"CommentAction\",\"name\":\"Comment\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/is\\\/ishellaaevintyri\\\/#respond\"]}]},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/is\\\/ishellaaevintyri\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/is\\\/ishellaaevintyri\\\/\",\"name\":\"\u00cdshella\u00e6vint\u00fdri - Visit Vatnaj\u00f6kull\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/#website\"},\"primaryImageOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/is\\\/ishellaaevintyri\\\/#primaryimage\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/is\\\/ishellaaevintyri\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2020\\\/12\\\/Picture-6.png\",\"datePublished\":\"2021-04-28T09:34:39+00:00\",\"author\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/4cf2906282159374e32b63bc042015c8\"},\"description\":\"\u00dea\u00f0 er magna\u00f0 a\u00f0 upplifa st\u00f3ru n\u00e1tt\u00faru\u00f6flin sem m\u00f3ta \u00cdsland, s\u00e9rstaklega \u00feegar \u00feau koma saman og mynda einstakt landslag, eins og sj\u00e1 m\u00e1 \u00ed Vatnaj\u00f6kuls\u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0i sem er a\u00f0 finna \u00e1 Su\u00f0austurlandi um 380 km fr\u00e1 Reykjav\u00edk.\",\"breadcrumb\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/is\\\/ishellaaevintyri\\\/#breadcrumb\"},\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/is\\\/ishellaaevintyri\\\/\"]}]},{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/is\\\/ishellaaevintyri\\\/#primaryimage\",\"url\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2020\\\/12\\\/Picture-6.png\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2020\\\/12\\\/Picture-6.png\",\"width\":600,\"height\":400},{\"@type\":\"BreadcrumbList\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/is\\\/ishellaaevintyri\\\/#breadcrumb\",\"itemListElement\":[{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":1,\"name\":\"Home\",\"item\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/is\\\/\"},{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":2,\"name\":\"\u00cdshella\u00e6vint\u00fdri\"}]},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/\",\"name\":\"Visit Vatnaj\u00f6kull\",\"description\":\"Visit Vatnaj\u00f6kull and explore all that the region has to offer\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/4cf2906282159374e32b63bc042015c8\",\"name\":\"\u00deorkell \u00d3skar Vignisson\",\"image\":{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/wp-content\\\/wphb-cache\\\/gravatar\\\/b45\\\/b453d4bf01650d8cf03c2b36f9558bfex96.jpg\",\"url\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/wp-content\\\/wphb-cache\\\/gravatar\\\/b45\\\/b453d4bf01650d8cf03c2b36f9558bfex96.jpg\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/wp-content\\\/wphb-cache\\\/gravatar\\\/b45\\\/b453d4bf01650d8cf03c2b36f9558bfex96.jpg\",\"caption\":\"\u00deorkell \u00d3skar Vignisson\"},\"url\":\"https:\\\/\\\/visitvatnajokull.is\\\/is\\\/author\\\/oskar\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"\u00cdshella\u00e6vint\u00fdri - Visit Vatnaj\u00f6kull","description":"\u00dea\u00f0 er magna\u00f0 a\u00f0 upplifa st\u00f3ru n\u00e1tt\u00faru\u00f6flin sem m\u00f3ta \u00cdsland, s\u00e9rstaklega \u00feegar \u00feau koma saman og mynda einstakt landslag, eins og sj\u00e1 m\u00e1 \u00ed Vatnaj\u00f6kuls\u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0i sem er a\u00f0 finna \u00e1 Su\u00f0austurlandi um 380 km fr\u00e1 Reykjav\u00edk.","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/ishellaaevintyri\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"\u00cdshella\u00e6vint\u00fdri - Visit Vatnaj\u00f6kull","og_description":"\u00dea\u00f0 er magna\u00f0 a\u00f0 upplifa st\u00f3ru n\u00e1tt\u00faru\u00f6flin sem m\u00f3ta \u00cdsland, s\u00e9rstaklega \u00feegar \u00feau koma saman og mynda einstakt landslag, eins og sj\u00e1 m\u00e1 \u00ed Vatnaj\u00f6kuls\u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0i sem er a\u00f0 finna \u00e1 Su\u00f0austurlandi um 380 km fr\u00e1 Reykjav\u00edk.","og_url":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/ishellaaevintyri\/","og_site_name":"Visit Vatnaj\u00f6kull","article_publisher":"https:\/\/www.facebook.com\/visitvatnajokull.is\/","article_published_time":"2021-04-28T09:34:39+00:00","og_image":[{"width":600,"height":400,"url":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-6.png","type":"image\/png"}],"author":"\u00deorkell \u00d3skar Vignisson","twitter_card":"summary_large_image","twitter_creator":"@vatnajokull_reg","twitter_site":"@vatnajokull_reg","twitter_misc":{"Written by":"\u00deorkell \u00d3skar Vignisson","Est. reading time":"7 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/ishellaaevintyri\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/ishellaaevintyri\/"},"author":{"name":"\u00deorkell \u00d3skar Vignisson","@id":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/#\/schema\/person\/4cf2906282159374e32b63bc042015c8"},"headline":"\u00cdshella\u00e6vint\u00fdri","datePublished":"2021-04-28T09:34:39+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/ishellaaevintyri\/"},"wordCount":1328,"commentCount":0,"image":{"@id":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/ishellaaevintyri\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-6.png","articleSection":["Myndat\u00f6kur","J\u00f6klar","Lei\u00f0s\u00f6gn","N\u00e1tt\u00fara","Sko\u00f0unarfer\u00f0ir","Hugmyndir"],"inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"CommentAction","name":"Comment","target":["https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/ishellaaevintyri\/#respond"]}]},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/ishellaaevintyri\/","url":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/ishellaaevintyri\/","name":"\u00cdshella\u00e6vint\u00fdri - Visit Vatnaj\u00f6kull","isPartOf":{"@id":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/#website"},"primaryImageOfPage":{"@id":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/ishellaaevintyri\/#primaryimage"},"image":{"@id":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/ishellaaevintyri\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-6.png","datePublished":"2021-04-28T09:34:39+00:00","author":{"@id":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/#\/schema\/person\/4cf2906282159374e32b63bc042015c8"},"description":"\u00dea\u00f0 er magna\u00f0 a\u00f0 upplifa st\u00f3ru n\u00e1tt\u00faru\u00f6flin sem m\u00f3ta \u00cdsland, s\u00e9rstaklega \u00feegar \u00feau koma saman og mynda einstakt landslag, eins og sj\u00e1 m\u00e1 \u00ed Vatnaj\u00f6kuls\u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0i sem er a\u00f0 finna \u00e1 Su\u00f0austurlandi um 380 km fr\u00e1 Reykjav\u00edk.","breadcrumb":{"@id":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/ishellaaevintyri\/#breadcrumb"},"inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/ishellaaevintyri\/"]}]},{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/ishellaaevintyri\/#primaryimage","url":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-6.png","contentUrl":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-6.png","width":600,"height":400},{"@type":"BreadcrumbList","@id":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/ishellaaevintyri\/#breadcrumb","itemListElement":[{"@type":"ListItem","position":1,"name":"Home","item":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/"},{"@type":"ListItem","position":2,"name":"\u00cdshella\u00e6vint\u00fdri"}]},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/#website","url":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/","name":"Visit Vatnaj\u00f6kull","description":"Visit Vatnaj\u00f6kull and explore all that the region has to offer","potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/#\/schema\/person\/4cf2906282159374e32b63bc042015c8","name":"\u00deorkell \u00d3skar Vignisson","image":{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/wphb-cache\/gravatar\/b45\/b453d4bf01650d8cf03c2b36f9558bfex96.jpg","url":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/wphb-cache\/gravatar\/b45\/b453d4bf01650d8cf03c2b36f9558bfex96.jpg","contentUrl":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/wphb-cache\/gravatar\/b45\/b453d4bf01650d8cf03c2b36f9558bfex96.jpg","caption":"\u00deorkell \u00d3skar Vignisson"},"url":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/author\/oskar\/"}]}},"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/wp-content\/uploads\/2020\/12\/Picture-6.png","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/219634","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/11"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=219634"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/219634\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/219160"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=219634"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=219634"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/visitvatnajokull.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=219634"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}