Um ríki Vatnajökuls

Ríki Vatnajökuls er öflugt markaðsfélag sem sameinar ferðaþjónustuaðila innan svæðis ríkis Vatnajökuls. Félagið sér um markaðssetningu ferðaþjónustu í Austur-Skaftafellssýslu og leggur áherslu á gæði og fagmennsku heimafyrirtækja félagsins. Félagið stefnir á að verða leiðandi félag í íslenskri ferðaþjónustu og hefur þrjú gildi sem leiðarstef í öllu sínu starfi, en þau eru: samvinna - fagmennska - framsýni

Svæði ríkis Vatnajökuls

Ríki Vatnajökuls nær frá hinum tignarlega Lómagnúp til vesturs að tilkomumiklu landslagi Hvalness til austurs. Á svæðinu geta ferðamenn heimsótt Vatnajökul, stærsta jökul Evrópu og aðliggjandi svæði sem hefur upp á margt að bjóða.  

Ríki Vatnajökuls er stórbrotið svæði sem hefur að geyma magnaða íshella, töfrandi lón fyllt fljótandi ísjökum og jökultungur, sumar hverjar sem auðvelt er að nálgast. Þá eru strendur fylltar svörtum sandi algeng sjón í ríki Vatnajökuls. Svarti sandurinn verður til þegar jökullinn mylur berggrunn sinn og er sandurinn borinn að sjó af jökulám þar sem öldur, vindur og straumar móta sandinn í mögnuð listaverk af náttúrunnar hendi.

Svæðið býður upp á marga veitingastaði sem nýta margir hverjir hráefni frá svæðinu. Allir ættu að geta fundið sér afþreyingu við sitt hæfi í ríki Vatnajökuls þar sem eru margir valmöguleikar til ævintýraferða sem og annarrar slakandi afþreyingar allan ársins hring. Gestir í ríki Vatnajökuls býðst úrval afþreyingar, fallegt landslag og áhugaverðra staða til þess að skoða.

Ferðalag um stórbrotna sveitina sem hvílir á milli jökla og strandlengju Atlantshafsins  á suðausturlandinu bregst ekki væntingum gesta. Sjávarþorpið Höfn, einnig þekkt sem „humar  höfuðborg“ Íslands, er staður sem vert er að heimsækja.