FLOKKUR
Veitingastaður
Opið
Allt árið
Máltíðir
Tags
Í Þórbergssetri er þægilegur veitingasalur með vínveitingaleyfi og sæti fyrir 80 – 100 manns. Hægt er að fá veitingar alla daga allt árið um kring. Yfir daginn er alltaf kaffi á könnunni og heimabakað brauð og kökur, en einnig kjötsúpa og ýmsir smáréttir m.a. úr Jöklableikju frá Hala.
Á sumrin er í gildi matseðill fyrir hópa og einstaklinga á sanngjörnu verði í hádeginu, kjötsúpa, bleikjuréttir og kaffi. Nauðsynlegt er að panta í síma 478 1078 eða á netfangið [email protected]
Á kvöldin frá kl 18:30 – 21 er hægt að fá kvöldmat alla daga. Á matseðli er hefðbundinn íslenskur matur, bleikja, lambakjöt og rabbabaragrautur. Frá 20. júní til 20. ágúst er hlaðborð á sanngjörnu verði. Panta þarf sérstaklega mat fyrir hópa í síma 478 1078 eða á netfangið [email protected]
Heimamenn eru ávallt reiðubúnir að ræða við gesti og veita fræðslu og upplýsingar um umhverfi, náttúru og mannlíf
Hægt er að panta upplestur úr verkum Þórbergs undir borðum.
Velkomin í Suðursveit