Hótel Jökull

SJÁ NÁNAR

TEGUND

Hótel

Opið

1. júní til 15. september

Hótel Jökull er fjölskyldurekið hótel, staðsett í nágrenni Vatnajökuls. Hótelið býður uppá gistingu í 58 herbergjum með veitingastað sem býður upp á morgunverð og kvöldmat.

Nettenging er góð á öllu hótelinu og nóg er af bílastæðum fyrir framan hótelið.

Starfsfólk Hótel Jökuls er til taks við að ráðleggja gestum varðandi afþreyingu og útivist á á svæðinu, hjálpa til við að bóka dagferðir og skipuleggja ævintýralega dvöl.

Hótelið er vel staðsett fyrir þá ferðalanga sem vilja skoða Vatnajökulsvæðið og Suðurlandið. Það er mikið úrval af afþreyingu í boði nálægt hótelinu, svo sem gönguleiðir, íshellaferðir, vélsleðaferðir, golfvöllur og sundlaug. Hótelið er opið meirihluta ársins.

Vinsamlegast athugið að vegna COVID-19 faraldursins verður veitingastaðurinn okkar lokaður það sem eftir er árs 2020. Við þökkum fyrir skilninginn.

Upplýsingar

Sími: 478 1400

Netfang: [email protected]

Skoða vefsíðu
Visit Vatnajökull
Visit Vatnajökull